2013 - 2025
NÆSTA HÁTÍÐ
20 - 22 mars 2025
Hver vegur að heiman er vegurinn heim
Bækur sem fengu framhaldslíf
Júlíana hátíð 2024
Samstarf við Grunnskólann í Stykkishólmi
Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari kom í janúar 2024 og vann með nemendum 3. - 6. bekkjar Grunnskólans í Stykkishólmi að ritlist. Bergrún kom aftur og var með nemendum á hátíðinni þar sem hún kynnti afrakstur samstarfsins í Amtsbókasafninu þar sem nemendur lásu úr verkum sínum.
Ljóða- og smásagnasamkeppni
Eitt af verkefnum Júlíönu - hátíðar er að standa fyrir árlegri ritsamkeppni. Annað hvert ár er ljóðasamkeppni og hitt árið þá smásagnasamkeppni .
Júlíana hátíð 2024
Leshópar lásu Sölku Völku
Fyrir hverja hátíð er leshópur sem hittist og oft er lesin bók eins af þeim rithöfundum sem heimsækir hátíðina þó ekki sé það gert núna. Árið 2024 voru tveir hópar annar í Stykkishólmi og hinn í Reykjavík. Sú bók sem varð fyrir valinu var Salka Valka eftir nóbelsskáldið Halldór Laxness. Ólafur K. Ólafsson stýrði leshópnum í Stykkishólmi og Gréta Sig. stýrði hópnum í Reykjavík með aðstoð Silju Aðalsteinsdóttur.
Þátttakendur á hátíð 2023
Við fengum til okkar marga áhugaverða gesti og ber þar fyrst að nefna frú Elízu Reid, rithöfund og forsetafrú sem fjallaði um bók sína Sprakkar.
Einnig komu rithöfundarnir Ana Mjallhvít Drekadóttir, Jakub Stachowiak og Victoria Bakshina sem tóku þátt í höfundaumræðu ásamt Elízu Reid en henni stýrði Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur.
Þá kom hin úkraínska söngkona og tónskáld, Alexandra Chernyshova og flutti óperuaríur úr verkum sínum með kirkjukór Stykkishólmskirkju við undirleik organistans László Petö .